Skip to product information
Chicco Next2Me Magic Evo- Ljós Grátt

ARTSANA S.p.A.

Chicco Next2Me Magic Evo- Ljós Grátt

Vörunúmer: C8704172EAN: 8058664167746 Væntanlegt

Heildsöluverð er læst

Skráðu þig inn til að sjá heildsöluverð og magntilboð.

Innskrá til að sjá verð

Vagga og co-sleeper
Ofnæmisprufuð dýna fylgir. Hönnuð skv stöðlum EN 16890:2017 varðandi öndun á dýnu
Hægt er að láta Next2me Magic halla ef barnið er t.d með kvef eða bakflæði
Hægt að opna og loka hliðinni með annarri hendi
Hægt að láta vögguna vagga
4 læsanleg hjól
Gott net í hliðum til að tryggja gott loftflæði og til að geta fylgst með barninu
11 stillingar á hæð.
Pakkast einstaklega vel saman og því hægt að nota sem ferðarúm. Fylgir með handhæg taska
Með fylgja öruggar festingar til að festa við rúm
Auðvelt að losa vögguna frá rúminu til að nota hana frammi á daginn
Vaggan á alltaf að vera fest með böndunum við rúm foreldra á næturnar.
Stærð: Hæð 64-80cm, Lengd: 99cm Breidd: 73,5cm.
Stærð á dýnu 51cm*82cm*5cm
Þyngd 13kg
Litur: Ljós grá/Grey mist

Kaupauki fylgir öllum vöggum meðan birgðir endast

Ein vinsælasta varan frá Chicco enda margverðlaunuð Next2me  Magic Co-sleeper og vagga

Kostir samsvefns

Það eru margir kostir við það sofa nálægt barninu þínu fyrstu mánuðina.  Rannsóknir sína að tengls foreldra og barns verða sterkari við samsvefni/co-sleeping. Með Chicco Next2me geta foreldrað sofið betur vitandi að barnið er nálægt en samt öruggt í sínu eigin rúmi . Brjóstagjöf og umönnun barnsins á næturnar verður einnig auðveldari með því hafa barnið svona nálægt.

Hægt að opna/loka með annarri hendi

Hægt að opna og loka hliðinni með annarri hendi jafnvel þegar Next2me Magic vaggan er föst við hjónarúmið. Þetta gerir það að verkum að auðvelt er opna vögguna jafnvel um miðja nótt.

Co-sleeper og vagga

Hægt er að nota Next2me Magic sem co-sleeper með því að festa vögguna við (hjóna)rúmið og opna aðra hliðina. Alltaf er mælt með því að þegar barnið sefur að hafa Next2me fasta við rúm foreldra. Það er líka hægt að loka hliðinni og vagga Next2me eða nota sem vöggu á daginn. Next2me Magic passar við flest rúm hún hefur 11 mismunandi hæðarstillingar.

Auðvelt að láta vögguna rugga

Chicco Next2me Magic er með ruggustillingu sem lætur vögguna vagga. Auðvelt er að setja ruggustillinguna á en það er gert með einu handtaki.

Passar á flest rúm

Next2me Magic vaggan hefur 11 hæðastillingar til að það passi við flestar gerðir (hjóna)rúma.

Fjögur hjól

Chicco Next2me Magic er með fjögur læsanleg hjól.  Það er því auðvelt að færa vögguna á milli herbergja.

Hægt að halla

Hægt er að hækka aðra hliðina á Next2me Magic sem er frábær lausn ef barnið er t.d með kvef, eyrnarbólgu eða er stíflað. Hægt er að halla  Next2me Magic á 4 mismunandi vegu.

Frábært ferðarúm

Chicco Next2me vaggan leggst einstaklega vel saman og fylgir með henni ferðapoki sem auðveldar að ferðast með vögguna. Chicco Next2me vaggan vegur einungis 11kg.

Ferðarúm

Þægileg

Chicco Next2me co-sleeper er hönnuð með þægindi barnsins í hug. Hún er breið og vel bólstruð. Got net er á hliðinni til að tryggja gott loftflæði og til að geta fylgst sem best með barninu. Dýnan í Next2me er hönnuð skv nýjustu stöðlum um öndun.

 

You may also like